Hvað er Vitargo ?Vitargo® er einkaleyfisverndað kolvetni unnið úr byggsterkju. Sterkja er samsett úr tveimur efnasamböndum, annað heitir amylose og hitt amylopectin. Hvort efnasamband fyrir sig hefur sérstæða sameindabyggingu og efnafræðilega eiginleika. Fyrir nokkru, fundu vísindamenn hjá Lyckeby Starch, aðferð til að einangra amylopectin úr sterkju. Amylopectin (Vitargo®) er það kolvetni sem skapar þá einstöku virkni sem menn upplifa við notkun á Vitargo vörunum. Íþrótta og orkudrykkir í dag eru lang flestir samsettir úr glúkósa, glúkósafjölliðum og maltódextríni. Vitargo® hefur 100 sinnum meiri mólmassa en maltódextrín og 3000 sinnum meiri mólmassa en glúkósi og hefur álíka sameindabyggingu og glykogen (sjá töflu að neðan). Vitargo® hefur verið rannsakað ýtarlega af Læknaháskólasjúkrahúsinu í Stokkhólmi (Karolinska Institutet) og borið saman við aðra algenga kolvetnahleðsludrykki. Niðurstöðurnar sýndu að Vitargo® var 70% fljótara að endurnýja orkubyrgðir (glýkogen) líkamans¹ og fer 80% hraðar í gegnum magann² . Vitargo® hefur fengið vottun frá Matvælasviði Umhverfisstofnunar um að þessar fullyrðingar standist. Engin önnur sambærileg efni á markaði í dag hafa fengið slíka vottun. Fyrir þig þá þýðir þetta: Hraðari endurheimt, engin óþægindi í maga og glýkogen-birgðir líkamans endurhlaðast á sem hraðastan og skilvirkasta máta. Til að áhrif Vitargo® fái að njóta sín er mikilvægt að blandaður drykkur sé ekki meira en 10% að styrkleika og að öðrum kolvetnum (glúkósa, frúktósa eða maltódextrín) sé ekki blandað saman við það. Allir Vitargo® drykkirnir eru sykurlausir.
Hérna má sjá rannsóknirnar: European Journal Of Applied Phisiology http://www.springerlink.com/content/bxe1gbrlca6x5lfg/?p=d96a3808665847828117dbed934714ba&pi=0 Smellið á takkan Entire document, neðst hægrameginn á síðunni, til að sjá allt skjalið Heimildir: |