Osmolality

  Til að skilja vísindin á bak við Vitargo þá verðum við að byrja á að skoða hugtakið “osmolality”.

  Sterkja í jurtaríkinu er í raun jafngildi glykogens í dýraríkinu. Amylose og Amylopectine  mynda sameindina Sterkju. Vitargo® (Amylopectine) hefur 3000 sinnum meiri mólmassa en glúkósi og 100 sinnum meiri mólmassa en maltodextrine. Þetta þýðir að í einu grammi af kolvetninu Vitargo® eru margfallt færri en að sama skapi stærri sameindir en í einu grammi af glúkósa eða maltódextrine.

  Osmolality er mælikvarði á fjölda sameinda í ákveðnu magni vökva. Því stærri sem sameindirnar eru, því færri sameindir rúmast í lausnini. Því færri sameindir, því lægra osmolality.

Það eru tveir megin þættir sem hafa áhrif á hve hratt vökvi úr drykk fer út í blóðrásina:

  1. Hve hratt drykkurinn fer í gegnum magann.
  2. Hve hratt vökvinn frásogast í gegnum veggi smáþarmanna

  Hve hratt lausnin (drykkurinn) ferðast í gegnum magann, stjórnast af  hver osmolality tala hennar er. Osmolality hefur líka áhrif á það hvort lausnin (drykkurinn) dregur í sig vökva í maganum eða hvort hún dregur vökvan með sér í gegnum magann. Drykkir með hátt osmolality hafa tilhneigingu til að draga til sín vökva úr varabirgðum líkamans (blóðrás og þörmum), það hægir á losun drykkjarins niður í þarmana og  getur valdið þembu og óþægindum í maga. Drykkir með lágt osmolality draga ekki til sín vökva, heldur draga hann með sér í gegnum magann og niður í þarmana þar sem hann frásogast og hjálpa þannig til við að halda vökvajafnvægi í líkamanum.

  Blóðvökvi er með osmolality í kringum 280-330mOsm/kg, drykkir með osmolality á því bili eru sagðir í “jafnvægi” eða “isotonic.  Drykkir sem hafa osmolality undir 280mOsm/kg eru “hypotonic”og drykkir með osmolality yfir 330mOsm/kg eru “hypertonic”.

  Því meiri styrkur kolvetna í drykknum, því hægar fer hann í gegnum magann. Isotoniskir drykkir með kolvetnastyrk á milli 6-8%  ferðast með svipuðum hraða og vatn í gegnum magann. Hypotoniskir drykkir með sama kolvetnastyrk hraðar og Hypertoniskir hægar.

  Vitargo® hefur mjög lágt osmolality  eða í kringum 11 (það lang lægsta sem um getur í kolvetnahleðsludrykkjum)  miðað við 10% lausn og er það kallað “ultra hypotonic

Innihald í

Gatorade*

Powerade*

Appelsínu*

Vitargo**

Vatn***

500 ml

 

 

safi

Electrolyte

 

 

Sucrose,

Fructose,

Glucose,

Barley

 

Tegund kolvetna

Glucose,

Glucose

Fructose,

starch

0

 

Fructose

polimers

Sucrose

 

 

 

 

Maltodextrine

 

 

 

Kolvetni %

6%

8%

10%

10%

0%

Kolvetni gr

28

41

52

50

0

Sodium (salt) mg

220

110

12

180

0

Potassium (kalíum) mg

220

110

872

52

0

Osmolality (mOsm)

280-360

420

218

11

5-15

*Þessar upplýsingar eru teknar af heimasíðu Gatorade Sports Science Institude
**Upplýsingar frá framleiðanda Vitargo
***Fer eftir steinefnainnihaldi

Hvað gerir Vitargo® svona sérstakt?

Vitargo® fer 70% hraðar inn í vöðvana en dextrosi, sem þýðir hraðari endurheimt eftir æfingar.

Vitargo® er 70% skylvirkara í að endurnýja glycogen byrgðir líkamans en dextrósi og maltódextrín.

Vitargo® stoppar mjög stutt við í maganum ( 80% hraðar en dextrósi og maltódextrín ) og veldur því ekki óþægindum í maga þótt þess sé neytt á meðan æfingu eða keppni stendur.

Vitargo® dregur ekki til sín vökva úr aukabyrgðum líkamans ( blóðrás og þörmum) eins og dextrosi og önnur einföld kolvetni , þvert á móti hafa rannsóknir sýnt fram á að Vitargo® hjálpar líkamanum að halda vökvajafnvægi sé þess neytt fyrir eða á meðan líkamlegri áreynslu stendur.

Vitargo® inniheldur engann sykur eða önnur einföld kolvetni.

Vitargo® flytur fæðubótaefni eins og kreatín, glutamine, tárín, arginín og stakar eða greinóttar amínósýrur með sér í gegnum magann 80% hraðar en ef þau væru tekin ein og sér. Vegna þessa einstöku hæfileika Vitargo® þá verður nýtni þessara efna mun betri en ella ( allt að 100% meiri ).

Vitargo® á sinn þátt í næstum 100 medalíum á síðustu Ólimpíuleikum, þar af 30 gullverðlaun.

Vitargo® er einungis framleitt í Svíþjóð af Lyckeby Starch sem er einn stærsti framleiðandi sterkju í heiminum í dag. Það mun ekki breytast fyrr en 2014, þegar einkaleifi þeirra rennur út. Þeim hefur nú tekist að þróa tækni til að fjöldaframleiða Vitargo® svo að allir hafi efni á að nota þetta einstaka efni, ekki bara hátekju afreksfólk í íþróttum (Vitargo® var gríðarlega dýrt efni til að byrja með og aðeins fáir höfðu efni á að nota það).

Af hverju hefur þú ekki heyrt um Vitargo® fyrr?

Það er vegna þess að Vitargo® er tiltölulega nýtt efni á markaðinum og framleiðandinn tók strax þá stefnu að auglýsa ekki í fjölmiðlum, sponsera ekki lið eða einstaklinga í íþróttum og hafa vöruna ekki í dýrum umbúðum. Það kostar mikla peninga og sá sem borgar brúsann á endanum ert þú, í hærra vöruverði.

Vitargo® er nú farið að auglýsa sig sjálft og eykst sá fjöldi íþróttamanna sem nota það við æfingar og keppni dag frá degi. Td. má nefna að 16 lið í ensku úrvalsdeildinni eru að nota Vitargo® í dag og Brasilíska, Franska og Enska landsliðið voru að nota það á HM í knattspyrnu í sumar. Allir sem þurfa á þoli eða styrk að halda í sinni íþrótt, hagnast á að nota Vitargo®, allt frá fótbolta og upp í vaxtarrækt (5 af 10 efstu keppendum á IFBB Mr. Olimpia tóku kolvetnahleðsluna á Vitargo®) og nánast allt þar á milli.

Vitargo® er skrásett vörumerki Swecarb AB. Vitargo® er framleitt af Lyckeby Starch.